ALLAR VÖRUR UPPSELDAR!

PANTANIR SEM BERAST
EFTIR 20. DESEMBER 2023
VERÐA AFHENDAR Í JANÚAR 2024

SAGAN Á BAK VIÐ FÁNAPOKANA

 

Verkefnið hófst í ársbyrjun 2012. Þegar ég uppgötvaði að í Fánasmiðjunni var helling af fánum sem höfðu ekki prentast rétt, voru ónothæfir og áttu að fara í ruslið. Eftir ýmsar tilraunir og hugmyndavinnu litu fyrstu pokarnir dagsins ljós og fengu nafnið Fánapokar, enda fjölnota pokar úr endurnýttum fánum.

Hugmyndin gengur út á endurvinnslu, að hugsa vel um umhverfið og að minnka kolefnissporið.

Við erum ekki að láta prenta efnið sérstaklega og litaúrval fer til dæmis eftir því hvaða fánaefni við fáum hverju sinni, prentgallar í efninu gefa pokunum persónuleika.

Ég reyni að hámarksnýta efnið þannig að eftir að búið er að sníða pokana sjálfa úr efninu, fara afgangarnir í bönd, ólar, smápoka og annað sem hægt er að búa til úr litlum afgangsbútum.

Það besta við Fánapokana:
eru mjög léttir
eru mjög sterkir
taka lítið pláss í töskunni
þeir endast mjög lengi
má þvo
eru búnir til úr endurnýttu efni sem öðlast nýtt líf í stað þess að fara í ruslið
íslensk hönnun og framleiðsla
kolefnisspor í lágmarki
engir tveir pokar eru eins!

Verkefnið hófst í ársbyrjun 2012.

Hugmyndin gengur út á endurvinnslu, að hugsa vel um umhverfið og að minnka kolefnissporið.

Í framleiðslu á fánum verður afgangur vegna prentgalla og þess háttar, sem við nýtum í nýjar vörur.

Það besta við Fánapokana:
eru mjög léttir
eru mjög sterkir
þeir endast mjög lengi
eru búnir til úr endurnýttu efni sem öðlast nýtt líf
íslensk hönnun og framleiðsla
kolefnisspor í lágmarki
engir tveir pokar eru eins!