Flöskupokarnir eru frábærir! Þeir eru jafn stórir og svörtu plast ruslapokarnir, en þeir taka örlítið meira þar sem pokanum er lokað með reim. Engir tveir pokar eru eins og þú færð poka sem er valinn að handahófi. Þú getur notað flöskupokann fyrir ýmislegt annað en flöskur, td. garðúrgang, útilegudót svo fátt megi nefna. Þú getur notað hann í hvað sem er því hann fer bara í þvottavélina þess á milli.
Fánapokarnir eru búnir til úr efni sem fellur til við framleiðslu fána
Það besta við fánapokana:
eru mjög léttir
eru mjög sterkir
taka lítið pláss í töskunni
þeir endast mjög lengi
má þvo
íslensk hönnun og framleiðsla
eru umhverfisvænir, því þeir eru búnir til úr endurnýttu efni sem öðlast nýtt líf í stað þess að fara í ruslið